25.01.2012 10:45
Fyrsti í mokstri árið 2012. Í dag moka ég upp 1,9 kg miðað við morgunvigtun sem hér eftir verður alltaf á miðvikudögum og stend nú í 78,4 kg. Síðan ég byrjaði að moka í lok september eru nú farin 10,2 kg vúbbídú! Þá eru aðeins 15 kg eftir sem ég hef í hyggju að losa mig við áður en ég fer til Benidorm núna í byrjun sumars.
Hræðilega gaman að finna lýsið leka af þá loksins að maður kemst almennilega í gírinn.